Foreldrar mínir ólust báðir upp í Kollsvík og tengsl mín við víkina alltaf mikil. Frá því ég var 4 ára var farið vestur á hverju sumri allt fram á fullorðinsár og dvalið um lengri eða skemmri tíma. Oftar lengri! Þetta var fasti punkturinn í mínum uppvexti, því við vorum alltaf að flytja milli staða. Tengslin við Kollsvík og frændfólkið sem þar bjó, hefur verið mikil í gegnum tíðina og mér afar dýrmæt.